Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra viðurkennir að ýmislegt gangi á í samstarfi stjórnarflokkanna. Í fyrsta þætti Spursmála var hún spurð hvort stjórnin héngi á bláþræði eins og heimildarmenn innan flokkanna þriggja vilja meina.
Hún tekur þó ekki svo djúpt í árinni en þáttastjórnandi vísaði m.a. í umdeilt frumvarp um tilhögun svokallaðra sanngirnisbóta sem forsætisráðherra hefur lagt þunga áherslu á að ná í gegnum þingið en sjálfstæðismenn hafa gert talsverða fyrirvara við.
Þórdís er gestur í fyrsta þætti Spursmála þar sem hún mætir til leiks ásamt Kristrúnu Frostadóttur, formanni Samfylkingarinnar.
Í brýnu skarst milli þeirra í nokkrum málum sem bar á góma í þættinum en sjón er sögu ríkari.
Þáttinn má sjá í heild sinni hér fyrir neðan en Spursmál verða í opinni dagskrá á mbl.is alla föstudaga kl. 14:00.