„Við höfum séð svona kvikuhlaup áður en ekki séð þetta gerast svona rosalega hratt,“ segir Benedikt Gunnar Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga á Veðurstofu Íslands, í Dagmálum.
Hann segir að mögulega hefði mátt rýma Grindavík fyrr en gert var. Rýna verði þó betur í gögnin áður en hægt verði að fullyrða um það.
Hann segir að ákvörðunin hafi verið Veðurstofunnar og að viðbragðsaðilar hafi farið af stað um leið.
„Tilkynningin var kynnt í sjónvarpinu aðeins seinna en þá voru viðbragðsaðilar farnir af stað,“ segir Benedikt.