Hvatningarverðlaun ÖBÍ verða afhent í dag á alþjóðadegi fatlaðs fólks í í Mannréttindahúsinu í Sigtúni 42 klukkan 11.
Í tilkynningu segir að verðlaunin séu veitt þeim sem hafa með verkum sínum stuðlað að einu samfélagi fyrir alla og endurspegla nútímalegar áherslur um þátttöku, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks. „Markmiðið er alltaf líf til jafns við aðra“.
Í ár eru tilnefnd:
- Gunnar Árnason fyrir gott fordæmi í þjónustu við fatlað fólk. Í umsögn segir að um sé að ræða nálgun sem endurspeglar nútímalegar áherslur um þátttöku, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks og stuðlar að einu samfélagi fyrir alla.
- Bíó Paradís fyrir frumkvæði að aðgengi fyrir alla með sérstöku tilliti til ólíkra hópa. umsögn segir að um sé að ræða nálgun sem endurspeglar nútímalegar áherslur um þátttöku, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks og stuðlar að einu samfélagi fyrir alla.
- Kolbrún Karlsdóttir fyrir Bergmál líknar- og vinafélag – orlofsdvöl, skemmtun og samvera fyrir fatlað fólk. Í umsögn segir að um sé að ræða nálgun sem endurspeglar nútímalegar áherslur um þátttöku, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks og stuðlar að einu samfélagi fyrir alla.
- Þórunn Eva G. Pálsdóttir fyrir Mia Magic – stuðningur og fræðsla til langveikra barna og foreldra þeirra. Í umsögn segir að um sé að ræða nálgun sem endurspeglar nútímalegar áherslur um þátttöku, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks og stuðlar að einu samfélagi fyrir alla.
Hægt er að fylgjast með afhendingu verðlaunanna hér að neðan.