Urður Egilsdóttir
„Auðvitað finnst okkur þetta voða napurlegt, svona sérstaklega miðað við aðstæðurnar sem hún bjó við á Hólmsheiði,“ segir Ragnheiður Arnardóttir, systir Eddu Bjarkar Arnardóttur, sem situr nú í 30 daga gæsluvarðhaldi í bænum Skien í Noregi.
Ragnheiður segir að aðstæður Eddu Bjarkar á Hólmsheiði hafi verið mun betri en í norska fangelsinu. „Það hljómar að minnsta kosti þannig.“
Í samtali við mbl.is í gærkvöldi sagði Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður Eddu Bjarkar, að hún mætti ekki tala við neinn nema verjanda sinn í hálftíma á dag. Norski fjöldamorðinginn og þjóðernisöfgamaðurinn Anders Behring Breivik sat í Skien-fangelsinu í Telemark í áratug áður en fangelsinu var breytt í kvennafangelsi fyrr á árinu.
Ragnheiður hefur sjálf ekki heyrt í Eddu Björk, en maðurinn hennar og lögfræðingur hafa heyrt í henni eftir að hún var flutt í fangelsið.
Líkt og áður sagði var gæsluvarðhaldið úrskurðað til 30 daga en Ragnheiður segir óvíst hvernig jólin verða hjá Eddu Björk.
„Miðað við það sem lögfræðingurinn segir þá getur verið að hún verði færð yfir á opinn gang, en við vitum það bara ekki, það er ekkert staðfest með það.“
Ragnheiður segir að sonum Eddu Bjarkar líði vel eftir því sem hún best veit. Á næstu dögum skýrist betur staða þeirra.