Grunur leikur á því að sólin hafi blindað ökumanninn sem velti bifreið sinni á Fríkirkjuvegi við Tjörnina í miðbæ Reykjavíkur á laugardaginn.
Fram kemur í skýrslu lögreglunnar að ætla megi að sólin hafi blindað sýn ökumanns í hliðarspegli en sólin var lágt á lofti þegar óhappið átti sér stað.
„Þetta sýnir okkur að menn verða að fara varlega þegar svona aðstæður eru,“ segir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
Einn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild og reyndist um minniháttar meiðsli að ræða.