Þéttsetið á jólatónleikum Karlakórs Fjallabyggðar

Það var mögnuð stund er gestirnir sungu ásamt kórunum lagið …
Það var mögnuð stund er gestirnir sungu ásamt kórunum lagið Nóttin var sú ágæt ein. Ljósmynd/Karlakór Fjallabyggðar

Það var þéttsetið á jólatónleikum Karlakórs Fjallabyggðar í Siglufjarðarkirkju í dag en um 250 manns sóttu tónleikana. Fékk karlakórinn til liðs við sig kvennakórinn Sölku frá Dalvík.

„Við erum í skýjunum eftir vel heppnaða tónleika í Siglufjarðarkirkju í gærkvöldi ásamt Sölku kvennakór frá Dalvík. Við sendum kærar þakkir til allra sem komu og nutu stundarinnar með okkur,“ er haft eftir Eddu Björk Jónsdóttur kórstjóra í tilkynningu frá karlakórnum.

Mögnuð stund er 250 manns sungu Nóttin var sú ágæt ein

Fram kemur í tilkynningunni að sannkallaður jólaandi hafi ráðið ríkjum á tónleikunum en jólalögin sem sungin voru komu úr ýmsum áttum. 

„Meðal annars klassísk lög á borð við Hátíð í bæ og Hin fyrstu jól, en einnig voru á efnisskránni jólalög að hætti Baggalútsmanna eins og lögin Jólalalag og Stúfur. Að lokum sungu kórarnir nokkur lög saman og enduðu tónleikarnir á laginu Nóttin var sú ágæt ein þar sem tónleikagestir tóku einnig undir.

Það var nokkuð mögnuð stund að heyra um 250 manns syngja saman þetta fallega íslenska jólalag svo undir tók í kirkjunni,“ segir í tilkynningunni.

Meðleikari var Hörður Ingi Kristjánsson og stjórnendur voru Edda Björk Jónsdóttir og Mathias Spoerry.

Karlakór Fjallabyggðar fékk til liðs við sig kvennakórinn Sölku frá …
Karlakór Fjallabyggðar fékk til liðs við sig kvennakórinn Sölku frá Dalvík. Ljósmynd/karlakór Fjallabyggðar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert