Þórdís afþakkaði boð forsætisráðuneytisins

Þórdís Helgadóttir rithöfundur afþakkaði boðið frá forsætisráðuneytinu.
Þórdís Helgadóttir rithöfundur afþakkaði boðið frá forsætisráðuneytinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þórdís Helgadóttir rithöfundur hafnaði boði forsætisráðuneytisins um að koma og lesa upp úr bók sinni Armelo fyrir starfsfólk ráðuneytisins. Ástæðan er afstöðuleysi stjórnvalda í stríðinu fyrir botni Miðjarðarhafs. 

Þórdís greinir frá á Facebook og birtir þar svarbréf sitt við beiðni forsætisráðuneytisins. 

„Ég myndi svo gjarnan vilja koma og lesa upp fyrir starfsfólk forsætisráðuneytisins, sem er upp til hópa eflaust mikið menningar- og bókafólk sem gaman væri að fá að hitta.

Því miður verð ég samt að afþakka,“ segir í upphafi póstsins. 

„Þetta eru undarlegir tímar þar sem hver dagur er nýtt áfall og maður fylgist með því þar sem verið er að myrða börn í þúsundavís – ég næ varla utan um það að ég sé einu sinni að skrifa þessi orð. Eins og svo mörg önnur upplifi ég gríðarlegan vanmátt, okkur finnst við vera að hrópa út í tómið hvern einasta dag, þar sem við biðlum til stjórnvalda að gera þó að minnsta kosti það litla sem í þeirra valdi stendur til að spyrna á móti bókstaflegu þjóðarmorði,“ skrifar Þórdís. 

Hún segist gera sér grein fyrir því að margt af starfsfólki ráðuneytisins sé ekki í stöðu til að hafa áhrif en að innan ráðuneytisins séu sannarlega þau sem fara með ákvörðunarvald fyrir hönd þjóðarinnar. 

„Mig langar því að biðja þig að koma á framfæri einlægri ósk um a) að veita öllum Palestínumönnum hér á landi alþjóðlega vernd af mannúðarástæðum, b) greiða fyrir tafarlausri fjölskyldusameiningu, c) fordæma þjóðarmorðið fullum fetum á alþjóðavettvangi og d) slíta stjórnmálasambandi við Ísraelsríki.

Þetta eru okkar börn. Það er undir okkur öllum komið að gera það sem við getum. Ég er svo sem bara átakafælinn rithöfundur úti í bæ sem vill auglýsa eigin verk sem mest og best, og undir venjulegum kringumstæðum væri auðvitað hægt að halda notalega bókmenntastund á aðventunni án þess að spyrja um pólitíska afstöðu. En kringumstæðurnar eru ekki venjulegar og ég veit yfirhöfuð ekki alveg hvernig við eigum að fara að því að njóta aðventunnar. Þess vegna mun ég líka birta afrit af þessu svari á samfélagsmiðlum,“ skrifar Þórdís.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert