Falsaðir Ozempic-pennar, sem Lyfjastofnun varaði við í október, komust ekki í dreifingu á Íslandi. Þetta staðfestir Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, í viðtali í Dagmálum.
Lyfjastofnun Evrópu varaði við fölsuðum pennum á markaði og það sama gerði Lyfjastofnun hér á landi.
Ozempic er sykursýkislyf sem einnig hefur verið til þyngdarstjórnunar. Skortur hefur verið á lyfinu síðustu mánuði.
Rúna segir að vegna rekjanleika innan lyfjakerfisins hafi verið unnt að rekja fölsku pennana og tryggja að þeir færu ekki í umferð. Hún segist ekki hafa miklar áhyggjur af því að slík atvik verði tíðari vegna skorts á lyfinu.
Heldur hefur hún meiri áhyggjur af því að svarti markaðurinn með slík lyf stækki. Unnt er að kaupa ýmis lyf af svörtum markaði á netinu og segir Rúna það meira vera lyf í töfluformi, frekar en stungulyf á borð við Ozempic.
Sjúkratryggingar Íslands greindu frá því í morgun að reglum um greiðsluþátttöku hefði verið breytt. Um átta þúsund manns eru á lyfinu á Íslandi með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands. Þar að auki eru um fjögur þúsund sem nota lyfi að staðaldri, en uppfylla ekki skilyrði um greiðsluþátttöku.
Hefur sú krafa verið gerð að einstaklingar með sykursýki týpu 2 prófi fyrst önnur sykursýkislyf í hálft ár áður en þeir fá þessi lyf uppáskrifuð.
Þá hefur einnig verið ákveðið að hætta greiðsluþátttöku vegna Saxenda sem meðferð gegn offitu, þar sem Wegovy hefur skilað betri árangri og er ódýrara.