Stjörnu-Sævar til Náttúrufræðistofu Kópavogs

Sævar hefur verið ritstjóri Stjörnufræðivefsins um árabil.
Sævar hefur verið ritstjóri Stjörnufræðivefsins um árabil. Ljósmynd/Aðsend

Sævar Helgi Bragason, eða Stjörnu-Sævar eins og hann er gjarnan kallaður, hefur verið ráðinn sérfræðingur á Náttúrufræðistofu Kópavogs og hefur þar störf í ársbyrjun 2024.

Sævar Helgi mun vinna að mótun safnastarfs Náttúrufræðistofu Kópavogs ásamt forstöðumanni safnsins. Unnið er að nýjum áherslum í starfsemi Náttúrufræðistofu og gerð nýrrar grunnsýningar sem ætlað er að stuðla að auknu náttúrulæsi og tengja náttúruvísindi við ólík fræðasvið og listgreinar.

Sævar Helgi er með B.Sc. gráðu í jarðfræði frá Háskóla Íslandsog hefur starfað sem dagskrárgerðarmaður í sjónvarpi og útvarpi, rithöfundur og vísindamiðlari. Hann hefur m.a. kennt stjarnvísindi í framhaldsskólum og í Háskóla unga fólksins.

Sævar hefur starfað hjá Háloftadeild Raunvísindastofnunar Háskólans við segulmælingar, hann situr í fagráði Loftlagssjóðs Rannís og starfaði sem sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun í loftslagsmálum, græns samfélags og teymi losunarbókhalds. Sævar er tengiliður Íslands við European Southern Observatory (ESO), stærstu stjarnvísindasamtök heims og situr í stjórn Nýsköpunarverðlauna námsmanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert