Stærðfræðilæsi er sterkasta svið íslenskra nemenda í PISA en þrátt fyrir það stóðu fimmtán ára nemendur á Íslandi sig ekki eins vel í stærðfræðilæsi og jafnaldrar sínir á Norðurlöndunum eða nemendur að jafnaði í ríkjum OECD.
Í PISA 2022 var sérstök áhersla á stærðfræði og fleiri prófverkefni en áður reyndi á stærðfræðilega rökhugsun nemenda.
Menntamálastofnun deildi nokkrum sýnidæmum með mbl.is úr þeim kafla PISA-könnunarinnar er snýr að stærðfræðilæsi. Kaflanum er skipt í þrjár einingar: þríhyrningamynstur, sólkerfi og skóglendi.
Fyrsta spurningin innan einingarinnar þríhyrningamynstur eiga nemendur að reikna út hlutfall blárra þríhyrninga í mynstrinu á mynd. Verkefninu er aðallega ætlað að beina athygli þeirra að mynstrinu. Verkefnið flokkast í færnisviðið að beita stærðfræði og efnissviðið magn.
Taktu prófið hér.
Næsta spurning biður nemendur aftur um að reikna hlutfall þríhyrninga en í þetta sinn eftir að þeir hafa bætt röð við mynstrið sem ekki er sýnd á myndinni.
Þriðja spurningin í einingunni byggir á hinum tveimur og biður nemendur um að meta fullyrðingu um það hvað verður um hlutfall blárra þríhyrninga þegar fleiri röðum er bætt við og mynstrið heldur áfram.
Næsta eining í prófinu snerist um sólkerfið og voru þar tvær spurningar.
Taktu prófið hér.
Í fyrri spurningu einingarinnar sjá nemendur líkan þar sem fram koma meðalfjarlægðir á milli þriggja óþekktra reikistjarna og nemendur þurfa að svara því um hvaða reikistjörnur er að ræða með því að draga þær yfir í líkanið, með því að bera saman fjarlægð reikistjarnanna frá sólu.
Í seinni spurningu þurfa nemendur að svara því hversu marga milljónir kílómetra reikistjarnan Neptúnus er frá sólinni. Til að svara þurfa þeir að skoða töfluna til hægri sem sýnir fjarlægðina í stjarnfræðieiningum (se) og umreikna hana yfir í kílómetra.
Í þriðju einingunni, Skóglendi, byrja nemendur á því að lesa inngangstexta sem kynnir fyrir þeim viðfangsefni einingarinnar og eðli prófverkefnanna sem fylgja.
Taktu prófið hér.
Áður en nemendur svara spurningum í Skóglendi fara þeir í gegnum stutta æfingu þar sem þau kynnast virkni töflureiknisins. Gögnin í töflureikninum í verkefnum Skóglendis sýna umfang skóglendis sem prósentu af heildarflatarmáli landsvæðis í 15 löndum.
Í fyrsta verkefni innan einingarinnar eiga nemendur að nýta sér töflureikni til þess að svara eftirfarandi spurningum:
Í öðru skóglendisverkefninu eiga nemendur að svara því hver eftirfarandi staðhæfinga lýsir réttilega meðalbreytingunni (breytingu á meðaltali) á skóglendi í prósentum fyrir bæði tímabilin.
Í þriðja verkefninu eiga nemendur að svara í hvaða tveimur löndum stærsta breytingin varð á prósentu skóglendis frá einu tímabili til næsta tímabils.
Í fjórðu spurningunni áttu börn að svara hvort sú fullyrðing sé rétt að meira skóglendi sé í Suður-Kóreu en nokkru öðru landi á listanum miðað við ártölin sem eru sýnd.