Farbann yfir karlmanni sem grunaður er um að hafi orðið ungri konu að bana í heimahúsi á Selfossi í lok apríl, rann út í síðustu viku.
Lögreglan fór fram á að farbannið yrði framlengt en Héraðsdómur Suðurlands hafnaði kröfunni. Hefur ákvörðunin verið kærð til Landsréttar.
Þetta staðfestir Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi.
Maðurinn sem liggur undir grun sat í 18 vikur í gæsluvarðhaldi, eða rúmlega fjóra mánuði. Lög um meðferð sakamála kveða á um að ekki megi úrskurða sakborning til að sæta gæsluvarðhaldi lengur en tólf vikur nema að brýnir rannsóknarhagsmunir krefjist þess.
Rannsókn lögreglu hefur dregist á langinn sökum þess að töluverð bið hefur verið eftir krufningarskýrslunni og ýmsum tæknigögnum, að sögn Sveins Kristjáns.
Nú er „allt komið í hús“ og gerir hann ráð fyrir að málið verði komið á borð héraðssaksóknara í næstu viku. Er nú einungis lokafrágangur eftir.