Skólaskylda fyrir grindvísk börn á nýju ári

Skólaskylda verður tekin upp að nýju fyrir grindvísk börn í …
Skólaskylda verður tekin upp að nýju fyrir grindvísk börn í janúar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skólaskylda fyrir grunnskólabörn frá Grindavík mun taka aftur gildi 4. janúar 2024. Gerð var undantekning frá lögum um skólaskyldu vegna rýmingarinnar í Grindavík.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Grindavíkurbæ.

Þar segir að Grunnskóli Grindavíkur muni áfram starfrækja safnskóla á höfuðborgarsvæðinu og starfa áfram með sama sniði þar til hægt verður að flytja starfsemina aftur til Grindavíkur. Þá munu börn einnig geta áfram sótt skóla þar sem þau eru búsett í dag. 

Skólasókn 95%

Fram kemur að þó börnin séu nú á víð og dreif um landið sé skólasókn grunnskólabarna frá Grindavík um 95%.

Þar af sækir ríflega helmingur barnanna safnskóla Grunnskóla Grindavíkur sem er starfræktur á fjórum stöðum í Reykjavík. Boðið er upp á skólarútur fyrir börnin frá Suðurlandi, Suðurnesjum og nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur svo þau geti sótt safnskólana. Börnin sækja nú samtals 65 skóla í 28 sveitarfélögum um allt land.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert