Arnar Hjálmsson, formaður félags flugumferðarstjóra, segir að um tuttugu flugumferðarstjórar muni taka þátt í vinnustöðvun dagana 12. og 14. desember, sex klukkutíma í senn, frá klukkan fjögur til tíu að morgni til.
Fyrst var greint frá boðaðri vinnustöðvun stéttarinnar á mbl.is síðdegis í gær.
Aðspurður kveðst Arnar ekki vilja tjá sig um kröfur félagsins, en að félagið fari fyrst og fremst fram á launaleiðréttingu, þar sem flugumferðarstjórar telji stéttina hafa dregist aftur úr.
„Í samanburði við launaþróun síðustu ár og í samanburði við stéttir sem við teljum eiga að bera okkur saman við, sem að starfa í þessum fluggeira.“
Hann segir félagið hafa fundað með gagnaðila sínum tvisvar utan sáttasemjara, og að fundað hafi verið í dag. Fundað verður að nýju á morgun.