Gefa út nýtt hættumatskort fyrir Grindavík

Nýtt hættumatskort fyrir Grindavík var gefið út í dag.
Nýtt hættumatskort fyrir Grindavík var gefið út í dag.

Veðurstofa Íslands hefur gefið út nýtt hættumatskort vegna Grindavíkur og svæðisins í kringum bæinn. Að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar sýnir kortið mat á hættum sem eru til staðar og nýjum hættum sem gætu skapast með litlum fyrirvara innan tilgreindra svæða. „Eingöngu er lagt mat á hættu innan þessara svæða, en hættur geta leynst utan þeirra. Aðstæður innan og utan svæðanna geta breyst með litlum fyrirvara. Kortið verður uppfært reglulega og ræðst af því hver þróun virkninnar verður,“ segir í færslu á vef stofnunarinnar. 

Þar er jafnframt rakið að umbrotahrinunni sem hófst með landrisi við Svartsengi í október sé ekki lokið. „Land heldur áfram að rísa á sama hraða og síðustu daga. Á meðan að kvika heldur áfram að safnast fyrir við Svartsengi eru líkur á öðru kvikuhlaupi sem gæti endað með eldgosi.

Ef til kvikuhlaups kemur er líklegast að kvikan hlaupi aftur inn í kvikuganginn sem myndaðist 10. nóvember. Líklegasti upptakastaður eldgoss er norður af Grindavík í átt að Hagafelli og svæðinu við Sundhjúksgíga.“

Enn fremur segja sérfræðingar Veðurstofunnar að ekki sé hægt að fullyrða neitt um hvenær næsta kvikuhlaup verði. Það gæti það hafist með skömmum fyrirvara. „Óvissan um tímasetningu er mjög mikil og kvikuhlaup gæti orðið á næstu dögum eða mögulega eftir marga mánuði. 

Skjálftavirkni hefur haldist nokkuð jöfn síðustu daga. Stærsti skjálftinn sem mælst hefur síðustu 3 daga er 2,3 að stærð, en flestir skjálftanna eru í kringum 1 að stærð, alls 30 skjálftar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert