Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir útilokað að frumvarp um breytingu á raforkulögum, sem kallað hefur verið neyðarfrumvarp og hefur auk annars þann tilgang að veita Orkustofnun heimild til að forgangsraða raforku á markaði, nái fram að ganga.
„Okkur finnst skjóta skökku við að Alþingi skuli treysta sér til að setja neyðarlög og fara í skömmtun á raforku, en ekki treysta sér til að setja neyðarlög til að ráðast að rótum vandans,“ segir Sigurður. Orkumálastjóri hafi á síðustu árum viðrað skoðanir sínar á því hverjir ættu að fá að kaupa raforku og hverjir ekki.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.