Eldur kom upp innandyra í íbúðarhúsi við Skipasund í Reykjavík um klukkan eitt í nótt.
Að sögn varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu komust íbúar út af sjálfsdáðum og hlutu aðhlynningu á vettvangi. Enginn var fluttur á sjúkrahús.
Nágrannar höfðu reynt að slökkva eldinn þegar að tveir dælubílar mættu á vettvang og gekk slökkvistarf greiðlega.
Aðgerðir slökkviliðsins tóku um klukkustund en reykur og sót barst um alla íbúðina.
Að sögn varðstjóra kviknaði eldurinn útfrá kertagerð fyrir jólin.