Bláa lónið hefur framlengt lokun sína til klukkan 7 sunnudaginn 17. desember. Verður staðan þá endurmetin.
Bláa lónið hefur verið lokað síðan 9. nóvember.
Hefur Bláa lónið ítrekað þurft að framlengja lokun sína vegna þeirra atburða sem orðið hafa á Reykjanesskaga síðustu vikur. Er lónið á svæði 1 á hættumatskorti Veðurstofu Íslands.