Grindvíkingar fá rýmri tíma

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að rýmka þann tíma sem Grindvíkingar hafa til þess að huga að eigum sínum i Grindavíkurbæ.

Rýming fer nú fram eftir kl. 21 á kvöldin, að því er segir í tilkynningu frá lögregulnni á Suðurnesjum.

„Sami tími verður því í gildi fyrir íbúa og starfsmenn fyrirtækja eða frá því kl. 7 á morgnana til kl. 21.  Fjölmiðlar hafa aðgang að bænum á sama tíma.  Íbúum og starfsmönnum fyrirtækja verður ekki  fylgt inn á svæðið en viðbragðsaðilar verða til staðar í bænum.  Bærinn verður svo rýmdur eftir kl. 21 daglega. Óviðkomandi er bannaður aðgangur. Eftirlit verður haft með þeim bílum sem fara inn og út úr bænum.

Ekki er talið óhætt að leyfa íbúum að gista í bænum í desember.  Staðan verður endurmetin í byrjun næsta árs,“ segir í tilkynningunni. 

Hættur geta leynst víða

Eins og áður hefur verið greint frá, þá var ákveðið að færa almannavarnastig á hættustig fimmtudaginn 23. nóvember.  

„Nýtt hættumatskort var gefið út 8. desember sl., sjá viðhengi.  Kortið sýnir mat á hættum sem eru til staðar og nýjum hættum sem gætu skapast með litlum fyrirvara innan tilgreindra svæða. Eingöngu er lagt mat á hættu innan þessara svæða, en hættur geta leynst utan þeirra. Aðstæður innan og utan svæðanna geta breyst með litlum fyrirvara.   Kortið verður uppfært reglulega og ræðst af því hver þróun virkninnar verður.

Land heldur áfram að rísa við Svartsengi. Hægt hefur aðeins á landrisinu frá því á föstudag, en hraðinn á landrisinu er engu að síður meiri en mældist fyrir 10. nóvember sl. þegar að kvikugangurinn sem liggur undir Grindavík myndaðist.  Á meðan að kvika heldur áfram að safnast fyrir við Svartsengi eru líkur á öðru kvikuhlaupi og einnig eldgosi.

Að mati Veðurstofu Íslands kalla umbrotin 10 nóvember sl. á mun umfangsmeiri vöktun á Reykjanesskaga og skipuleggur Veðurstofan nú umfangsmeiri vöktun en verið hefur.  Hlutverk Veðurstofunnar með vöktun og hættumati er að skapa forsendur fyrir viðbragðsaðila til að taka ákvarðanir um aðgerðir,“ segir jafnframt í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert