Samningur vegna Grófarhúss undirritaður

Frá undirritun samningsins.
Frá undirritun samningsins. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Samningur um að ljúka hönnunarferlinu að breyttu Grófarhúsi var undirritaður í dag.

Teymi frá JVST arkitektum, Inside Outside, Hanrath Architect, Kreatíva teiknistofu, VSÓ ráðgjöf og Örugg verkfræðistofu varð hlutskarpast í hönnunarsamkeppni Reykjavíkurborgar og Arkitektafélags Íslands. Úrslitin voru tilkynnt í nóvember í fyrra.

Jaakko van ‘t Spijker skrifaði undir ráðgjafarsamninginn fyrir hönd hönnunarteymisins og ber vinningstillagan heitið Vitavegur, að því er segir í tilkynningu.

Fyrir hönd Reykjavíkurborgar skrifuðu undir Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, Eiríkur Björn Björgvinsson, sviðsstjóri menningar- og íþróttasviðs og Dagur B. Eggertsson  borgarstjóri sem hélt jafnframt ræðu og fagnaði þessum áfanga.

„Markmiðið með endurbótunum er að uppfylla sem best þær kröfur sem eru gerðar til nútíma bókasafna sem hýsa fjölbreytta þjónustu og dagskrá fyrir íbúa og aðra.  Borgarstjóri hefur lagt áherslu á að með breytingunum fái Grófarhús nýtt líf, sem opin og skemmtileg bygging, lifandi samfélags- og menningahús í takt við vel heppnuð dæmi hjá nágranna- og vinaþjóðum okkar. Í ræðu sinni í dag tók borgarstjóri sérstaklega fram hversu vænt honum þyki um bókasafnið og er hann spenntur fyrir hönnunarferlinu sem framundan er,” segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert