Verkfallið hefur keðjuverkandi áhrif

Fyrirhugað verkfall hefur víðtæk áhrif.
Fyrirhugað verkfall hefur víðtæk áhrif. mbl.is/Árni Sæberg

Fyrirhugað verkfall flugumferðastjóra mun hafa víðtæk áhrif á áætlunarflug Icelandair til og frá landinu á morgun. Verkfallið er fyrirhugað milli fjögur og tíu í fyrramálið og mun hafa keðjuverkandi áhrif inn í daginn. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. 

Verkfallið mun hafa áhrif á flug sem er á ætlun snemma í fyrramálið frá Norður-Ameríku til Íslands og flugi frá Íslandi til Evrópu mun seinka. Hefur það keðjuverkandi áhrif á flug síðdegis, bæði til og frá Evrópu til Íslands og frá Íslandi til Norður-Ameríku og Evrópu. 

Flugáætlunin á morgun umfangsmikil

Segir í tilkynningu að starfsfólk Icelandair muni fylgist náið með stöðunni og mun hafa samband við farþega með hefðbundnum samskiptaleiðum ef breyting verður á flugi.

Við breytingar á flugáætlun hefur starfsfólk Icelandair það að markmiði að allir farþegar komist á áfangastað innan sama ferðadags og að halda keðjuverkandi áhrifum á flugáætlunina í lágmarki. Flugáætlunin 14. desember er umfangsmikil en gert er ráð fyrir að verkfallsaðgerðirnar hafi áhrif á um 60 flug og þar með ferðalög um 8.300 farþega Icelandair.

Yfirlit yfir helstu aðgerðir:

  • Flug frá Norður-Ameríku sem átti að lenda um og upp úr klukkan sex í fyrramálið er nú á áætlun á milli 10:30-11:00.
  • Flug til Evrópu sem átti að fara í loftið á bilinu 7:20-8:40 er nú á áætlun á milli klukkan 09:45-11:45.
  • Flug til London Gatwick í fyrramálið verður sameinað flugi til London Heathrow
  • Tvær ferðir til Amsterdam verða sameinaðar.
  • Flugi til Frankfurt og Berlínar verður aflýst og farþegar endurbókaðir í gegnum Munchen og Zurich.
  • Hluti tengifarþega á leið til Stokkhólms og Óslóar hefur verið endurbókaður í gegnum Helsinki.
  • Í vikunni hefur farþegum sem eiga bókað flug á verkfallsdögum verið boðið að færa flugið sitt og ferðast þannig einum degi fyrr eða síðar.
  • Hluti tengifarþega hefur verið endurbókaður með öðrum flugfélögum á milli Evrópu og Norður-Ameríku.
  • Morgunflugi til Akureyrar er aflýst og farþegum boðið að ferðast með öðru flugi innan dagsins.
  • Morgunflugi til Egilsstaða seinkar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert