Kaupmáttur ráðstöfunartekna rýrnar enn

Áætlað er að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hafi dregist saman …
Áætlað er að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hafi dregist saman um 2,7% á þriðja ársfjórðungi ársins í samanburði við sama tímabil á síðasta ári. mbl.is/Sigurður Bogi

Áætlað er að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hafi dregist saman um 2,7% á þriðja ársfjórðungi ársins í samanburði við sama tímabil á síðasta ári að teknu tilliti til verðlagsþróunar og mannfjöldaaukningar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni.

Ráðstöfunartekjur 1,3 milljónir á mann á ársfjórðungnum 

Ráðstöfunartekjur heimilageirans jukust um 8% á þriðja ársfjórðungi ársins í samanburði við sama tímabil fyrra árs samkvæmt bráðabirgðatölum. Ráðstöfunartekjur á mann námu rúmlega 1,3 milljónum króna á ársfjórðungnum og jukust um 4,8% frá sama tímabili í fyrra.

Vísitala neysluverðs hækkaði á sama tíma um 7,8% og mannfjöldi jókst um 3%.

Launatekjur vógu þyngst

Heildartekjur heimilanna jukust um 13,1% á þriðja ársfjórðungi ársins samanborið við sama ársfjórðung á síðasta ári. Launatekjur vógu hvað þyngst í aukningu heildartekna en þær jukust um 10,9% frá sama ársfjórðungi á síðasta ári. Áætlað er að eignatekjur hafi aukist um 18,2% frá sama ársfjórðungi í fyrra og að vaxtatekjur hafi aukist um 47,4% á tímabilinu. Þá jukust lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur um 11,5%.

Vaxtagjöld jukust um rúm 40%

Heildargjöld heimilanna jukust um 19,7% á þriðja ársfjórðungi 2023 samanborið við sama ársfjórðung á síðasta ári. Skattgreiðslur jukust um 12,3%, tryggingagjöld um 7,7% og eignagjöld um 39,4%, þar af vaxtagjöld um 40,8% sem er nokkuð minni hækkun en síðustu ársfjórðunga þar sem vaxtahækkanir voru byrjaðar að gera vart við sig á þriðja ársfjórðungi síðasta árs.

Hagstofan mun birta endurskoðaðar niðurstöður þegar fyrir liggja endanlegri upplýsingar, meðal annars úr skattframtölum fyrirtækja og einstaklinga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert