Semja um uppbyggingu á Hlíðarendareit

Samþykktu samkomulag að fyrirhugaðri uppbyggingu á lóðum við Arnarhlíð 3 …
Samþykktu samkomulag að fyrirhugaðri uppbyggingu á lóðum við Arnarhlíð 3 og Hlíðarenda 13. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Borgarráð samþykkti í dag samkomulag milli Knattspyrnufélagsins Vals, Hlíðarenda ses. og Reykjavíkur sem snýr að fyrirhugaðri uppbyggingu á lóðum við Arnarhlíð 3 og Hlíðarenda 13.

Samkomulagið snýr jafnframt að áformum um byggingu fjölnota íþróttahúss, endurbyggingu gervigrasvallar og eignayfirfærslu gervigrasvallar austan Arnarhlíðar til Reykjavíkurborgar. Auk þess felur samkomulagið í sér breytta landnotkun sem tryggir aðgengi borgarlínu að svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg

Skýringarmynd sem sýnir fyrirhugaða uppbyggingu. Reitirnir sem um ræðir eru …
Skýringarmynd sem sýnir fyrirhugaða uppbyggingu. Reitirnir sem um ræðir eru A og J. Kort/ALARK arkitektar ehf.

Blönduð og hrein íbúðahúsalóð

Samningurinn tekur þannig til breytinga á deiliskipulagi Hlíðarendareits hvað varðar uppbyggingu þeirra tveggja lóða sem þar standa nú eftir óbyggðar. Um er að ræða reiti A og J, eða Arnarhlíð 3 þar sem lóðarhafi er Hlíðarendi ses. og lóð við Hlíðarenda 14 þar sem lóðarhafi er Knattspyrnufélagið Valur.

Samningurinn heimilar lóðarhöfum að láta vinna deiluskipulag vegna lóðanna á sinn kostnað, þar sem stefnt er að því að hafa annars vegar blandaða íbúðarhúsalóð og hins vegar hreina íbúðarhúsalóð, segir í tilkynningunni. 

Ráðstafa ábatanum í aðstöðu til íþróttaiðkunar 

Í samræmi við samningsmarkmið Reykjavíkurborgar er samið um að á lóðunum verði 20% íbúða skilgreindar sem leiguíbúðir, stúdentaíbúðir, leiguíbúðir Félagsbústaða hf., búseturéttaríbúðir og/eða íbúðir fyrir aldraða.

Sérstakt byggingarréttargjald verður ekki greitt vegna uppbyggingarinnar en þess í stað skuldbinda lóðarhafar sig til að ráðstafa ábatanum af henni til fjármögnunar á aðstöðu til íþróttaiðkunar á svæðinu.

Verður í þeim efnum sérstaklega horft til uppbyggingar fjölnota íþróttahúss á Hlíðarenda sem knattspyrnufélagið Valur mun fjármagna, byggja og reka og mun það uppfylla þarfir allra þeirra greina sem iðkendur félagsins leggja stund á. 

Borgin mun líklega reka íþróttamannvirkin að Hlíðarenda

Knattspyrnufélagið Valur mun endurbyggja og fjármagna gervigrasvöll vestan Arnarhlíðar á komandi ári. Reykjavíkurborg mun þó endurgreiða kostnað við völlinn á árunum 2025 til 2027 og verður hann þá í eigu borgarinnar.

Þá afhendir Knattspyrnufélagið Valur Reykjavíkurborg gervigrasvöll austan Arnarhlíðar til eignar, rekstrar og viðhalds frá upphafi komandi árs án sérstakrar greiðslu.

Reykjavíkurborg og Knattspyrnufélagið Valur eru sammála um að samhliða undirritun samningsins verði sett af stað vinna við endurskoðun á eignarhaldi íþróttamannvirkja að Hlíðarenda með það að markmiði að Reykjavíkurborg taki yfir rekstur þeirra frá upphafi ársins 2025, að því er fram kemur í tilkynningunni. 

Aðgengi borgarlínu tryggt

Samkomulagið kveður einnig á um breytta notkun á lóð við Hlíðarenda 12 þannig að hún verði nýtt undir almenningssamgöngur, þar sem borgarlína mun fara um Snorrabrautarás. Loks kveður samkomulagið á um uppgjör á framkvæmdakostnaði vegna gerðar göngustíga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert