Uppruni höfuðkúpunnar kynntur Katrínu

Höfuðkúpan fannst í Ráðherrabústaðnum fyrr á þessu ári.
Höfuðkúpan fannst í Ráðherrabústaðnum fyrr á þessu ári. Ljósmynd/Þjóðminjasafnið

Mannerfðafræðingar hjá Íslenskri erfðagreiningu munu á morgun gera Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra grein fyrir niðurstöðu rannsóknar á höfuðkúpubroti sem fannst í Ráðherrabústaðnum.

Brotið fannst í Ráðherrabústaðnum og kannaði forsætisráðherra hvort Íslenskri erfðagreiningu væri unnt að rannsaka uppruna hennar með erfðagreiningu. 

Agnar Helgason og Sunna Ebenesersdóttir mannerfðafræðingar munu greina frá niðurstöðunum á morgun, fötudaginn 15. desember. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert