Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir manni sem deildi fjölda mynda og myndbanda af fyrrverandi eiginkonu sinni og barnsmóður m.a. til fjölskyldu konunnar, vinnufélaga og vina. Þá setti hann jafnframt upp heimasíðu þar sem myndirnar var að finna og deildi tengli á síðuna í athugasemdakerfi fréttamiðils og í Facebook-hóp sem var með 40 þúsund notendur.
Hafði maðurinn verði dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í þriggja ára og níu mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot, stórfelldar ærumeiðingar og stórfelld brot í nánu sambandi.
Hinn þyngdi dómur Landsréttar er hins vegar upp á 4 ára og sex mánaða fangelsi. Þá er honum gert að greiða fyrrverandi eiginkonu sinni 4,5 milljónir króna í miskabætur með vöxtum.
Málið er mjög umfangsmikið, en ákæra málsins er í 136 liðum. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur segir að litið sé til mikils fjölda brota. „[B]rotin eru alvarleg og gróf og með þeim sýndi hann brotaþola fullkomið virðingarleysi og rauf með grófum hætti trúnað gagnvart henni.“
Undir þetta tekur Landsréttur og segir trúverðugt að konan hafi á sjö mánaða tímabili upplifað mikla þjáningu og niðurlægingu vegna hátternis mannsins.
Í héraðsdómi segir að maðurinn og konan hafi kynnst árið 2005. Þau hafi gift sig en séu nú skilin.
Konan segist hafa neyðst til að leyfa manninum að gista á heimili sínu árið 2018. Undir lok árs 2018 og byrjun 2019 hafi hann farið að senda henni hótanir og ljót skilaboð.
Hún hafi ítrekað beðið manninn að fara og að lokum, eftir að upp úr sauð einn daginn, hafi hún kallað eftir aðstoð lögreglu og maðurinn þá farið af heimilinu.
Í kjölfarið sendi maðurinn vinum hennar og fjölskyldu kynferðislegar myndir af henni. Hlóð hann myndskeiði á Youtube og myndum á aðrar síður. Þá stofnaði hann Facebook-aðgang í hennar nafni og sendi vinum hennar vinabeiðnir og myndirnar.
Í dóminum kemur jafnframt fram að nektarmyndir af konunni hafi verið sendar á 237 viðtakendur, en um var að ræða samtals 140 myndir. Meðal annars fengu 88 samstarfsmenn konunnar sendar myndirnar í tölvupósti.
Eins og fyrr segir var stofnuð heimasíða með myndunum, en tengli á síðuna var dreift á stórri Facebook-síðu með tæplega 40 þúsund notendur. Þá var tenglinum einnig dreift í athugasemd á innlendri fréttasíðu.
Í fjölmörgum tilfellum þar sem myndir voru birtar, eða skilaboð send á samfélagsmiðlum eða tölvupósti var notast við erlendar þjónustur sem gera erfitt að rekja spor viðkomandi.
Hins vegar var í tilfelli Facebook-hópsins og fréttasíðunnar notast við aðgang með nafni mannsins. Þá segir í dóminum að ákæruvaldið hafi sýnt fram á augljós tengsl á milli þessara sendinga og að það hafi verið tengt við manninn.
Maðurinn neitaði alfarið sök í málinu og sagðist ekkert kannast við síðuna þar sem myndirnar hefðu verið settar inn eða fjölda tölvupóstfanga sem hefðu verið notuð til að senda myndirnar á vini og fjölskyldu konunnar.
Þá er haft eftir manninum í dóminum að hann hafi áður unnið við tölvur, en árið 2015 hafi lögreglan komið og „hreinsað út“ allan tölvubúnað hjá manninum og í kjölfarið hafi hann ekkert unnið við tölvur og sagði hann tölvur hræða sig í dag.
Í niðurstöðu héraðsdóms segir að þegar litið sé heildstætt til myndefnisins og þeirra orða sem höfð eru eftir manninum sé samræmið augljóst, en myndirnar sýna konuna á kynferðislegan hátt og orðanotkunin er niðrandi í hennar garð. Þá sé ákveðið samræmi á milli innihalds þeirra sendinga sem maðurinn neitar fyrir og þeirra sem hann viðurkenndi að hafa sent, en telur þó ekki vera refsiverðar. Þá segir í dóminum að ljóst sé að sá sem dreifði myndunum hafi þekkt líf hennar vel og þá einnig fortíð hennar og það sem var að gerast í lífi hennar.
Maðurinn var handtekinn í Finnlandi í apríl 2019 og tæplega mánuði síðar framseldur til Íslands. Vakin er athygli á því í dóminum að eftir að maðurinn var handtekinn hafi dreifing myndanna stoppað.
Framburður konunnar er sagður stöðugur. Það sama á við um stóran hluta framburðar mannsins, en þó séu þar ósamræmi og að hann hafi breytt framburði frá skýrslutöku hjá lögreglu og svo í dómsal. Hins vegar segir í dóminum að skýringar mannsins um að konan hafi sjálf dreift myndunum sé fjarstæðukenndar.
„Þegar litið er heildstætt til málsatvika er það mat dómsins, með vísan til trúverðugs framburðar brotaþola, sem fær stuðning í framlögðum gögnum og þá sérstaklega þeim sem rakin hafa verið hér að framan, að sannað sé þannig að hafið sé yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem þar er rakin,“ segir í dóminum.