Ólíklegt að allir farþegar komist á áfangastað

Forsvarsmenn Icelandair telja ólíklegt að allir farþegar komist á áfangastað …
Forsvarsmenn Icelandair telja ólíklegt að allir farþegar komist á áfangastað fyrir jól ef verkföll flugumferðarstjóra halda áfram í næstu viku. mbl.is/Hörður Sveinsson

Ólíklegt er að allir farþegar Icelandair komist á áfangastað fyrir jól ef verkföll flugumferðarstjóra halda áfram, en áætlað er að tíu þúsund fleiri farþegar verði fyrir áhrifum komi til áframhaldandi verkfalla í næstu viku. 

Þetta kemur fram í tilkynningu sem flugfélagið sendi frá sér rétt í þessu. 

Tíu þúsund fleiri farþegar í næstu viku

Í tilkynningunni segir verkföll flugumferðarstjóra í þessari viku hafi valdið töluverðri truflun á flugáætlun Icelandair. Þá hafi frekari verkfallsaðgerðir verið boðaðar á mánudag og miðvikudag í næstu viku og muni aðgerðirnar valda áframhaldandi röskunum á flugáætlun félagsins og ferðaáætlanir farþega. 

Fram kemur í tilkynningunni að aðgerðir Félags íslenskra flugumferðarstjóra í þessari viku hafi haft áhrif á ferðalög 13.000 farþega Icelandair, en í þeirri næstu sé áætlað að 23.000 farþegar verði fyrir áhrifum.

Þar segir jafnframt að vegna mikils umfangs farþega aukist líkurnar á því að ekki takist að koma öllum farþegum á áfangastað vegna verkfallanna þar sem öll flug séu þéttbókuð á þessum tíma árs. 

Íslensk flugfélög finna mest fyrir verkfallinu

Í tilkynningunni er Icelandair gagnrýnið á tímasetningu verkfallanna, sem fyrirtækið segir Félag flugumferðarstjóra hafa valið til þess að valda íslensku flugfélögunum tjóni. 

„Verkfallið stendur á milli klukkan 4-10 að morgni, á þeim tíma sem flestar flugvélar Icelandair frá Norður-Ameríku lenda á Keflavíkurflugvelli og flestar flugvélar taka á loft til Evrópu,“ segir í tilkynningunni.

„Félag flugumferðarstjóra hefur valið tímasetningu aðgerðanna til að valda íslensku flugfélögunum skaða á meðan önnur alþjóðleg flugfélög verða fyrir minni áhrifum.“

Að er fram kemur í tilkynningu Icelandair gerir félagið ráð fyrir að umtalsverður kostnaður muni hljótast af verkfallsaðgerðunum, sér í lagi vegna aukins farþegafölda.

Þá geri núverandi áætlanir ráð fyrir að beinn kostnaður vegna aðgerða flugumferðastjóra gæti numið um það bil 5-7 milljónum Bandaríkjadala náist ekki samningar sem fyrst og kveðst fyrirtækið leita allra leiða til þess að fá það fjárhagslega tjón sem skapist vegna verkfallsins bætt að fullu af hendi Isavia. 

Aðgerðirnar bitni mest á þeim sem síst skyldi

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir stöðu mála alvarlega og að áríðandi samningar náist sem allra fyrst. Ísland reiði sig alfarið á flugsamgöngur til þess að ferðast til og frá landinu og sé landið því sérstaklega viðkvæmt fyrir aðgerðum af þessu tagi.

„Verkfallsaðgerðirnar hafa þegar valdið fjárhagslegu tjóni sem munu aukast verulega þegar nær dregur jólum ef samningar nást ekki,“ er haft eftir Boga Nils í tilkynningu Icelandair. 

„Aðgerðirnar bitna mest á þeim sem síst skyldi – fólki sem er að ferðast til að hitta fjölskyldu og vini á þessum mikilvæga tíma ársins. Við munum að sjálfsögðu gera okkar allra besta við að koma farþegum okkar á áfangastað fyrir jólin en það er alls ekki víst að það takist ef fer sem horfir. Það er því áríðandi að aðilar nái saman sem allra fyrst.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert