Félag flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR) styður kjarabaráttu Félags íslenskra flugumferðarstjóra. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var á fjölmiðla.
„FFR tekur undir yfirlýsingu Félags hafnarverkamanna og ítrekar sömuleiðis að launaliðurinn sé bara einn liður í kjaraviðræðum. Það er margt annað sem samningsaðilar geti strandað á,“ segir í tilkynningu.
<span>FFR er stéttarfélag flugmálastarfsmanna og starfa langflestir félagsmenn þess hjá Isavia ohf. og dótturfélögum.</span>
<span><a href="https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/12/17/stydja_vinnustodvun_flugumferdarstjora/" target="_blank">https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/12/17/stydja_vinnustodvun_flugumferdarstjora/</a></span>