Hermann Nökkvi Gunnarsson
Verð fyrir árskort í strætisvagna í Reykjanesbæ mun hækka um 400% á næsta ári. Þetta kemur fram í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins sem var samþykkt í síðustu viku.
Árskort fyrir almenna notendur í strætó kostar nú 5.000 krónur en mun hækka upp í 25.000 krónur. Helst verðið þó óbreytt fyrir börn á aldrinum 6-18 ára, öryrkja og eldri borgara sem borga 2.000 krónur fyrir árskort. Verðskráin helst einnig óbreytt fyrir námsmenn 18 ára og eldri sem borga 5.000 krónur.
Heimildir mbl.is herma að þessi gífurlega verðhækkun sé komin til vegna kaupa Vinnumálastofnunar á strætókortum fyrir hælisleitendur og flóttamenn í bænum. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, gat ekki staðfest það í samtali við mbl.is.
Kjartan bendir á að þetta sé enn töluvert ódýrara en árskort í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og að verðhækkunin bitni ekki á hópum eins og ungu fólk, námsmönnum, öryrkjum og eldri borgurum.
Mbl.is greindi í sumar frá erindi sem eigandi Bus4U sendi bæjarráði Reykjanesbæjar 8. maí vegna „neyðarástands í almenningssamgöngum í Reykjanesbæ“, en Bus4U sér um rekstur almenningssamgangna þar í bæ.
Í erindinu er því meðal annars lýst að „ákveðnir hópar“ séu ágengir og frekir, að börn veigri sér við því að nota strætó sökum áreitis, skemmdarverk á vögnum hafi aukist og bílstjórar hrökklist úr starfi.