Átta vilja verða veðurstofustjóri

Átta sækjast eftir embættinu.
Átta sækjast eftir embættinu. mbl.is/Arnþór Birkisson

Átta umsækjendur eru um embætti forstjóra Veðurstofu Íslands.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, auglýsti embættið laust til umsóknar í nóvember. Umsóknarfrestur rann út 11. desember.

Umsækjendur eru:

  • Fannar Karvel Steindórsson, framkvæmdastjóri
  • Haraldur Ólafsson, prófessor
  • Hildigunnur Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri
  • Ingvar Kristinsson, framkvæmdastjóri athugunar- og upplýsingatæknisviðs Veðurstofu Íslands
  • Ívar Kristinsson, sérfræðingur
  • Matthew James Roberts, framkvæmdastjóri þjónustu- og rannsóknasviðs Veðurstofu Íslands
  • Sigríður Auður Arnardóttir, fyrrverandi ráðuneytisstjóri
  • Sigurður Erlingsson, rekstrarhagfræðingur

Valnefnd sem skipuð hefur verið af ráðherra mun meta hæfni og hæfi umsækjenda. Nefndin skilar svo frá sér greinargerð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert