Falleg mynd af kirkjunni undir eldrauðum bjarma

Ljósmynd/Daníel Máni Jónsson

Sannkölluð ljósasýning var fest á filmu í gærkvöld þar sem eldrauður bjarminn frá eldgosinu við Sundhnúkagíga var í aðalhlutverki.

Kópavogskirkja stendur tignarleg á toppi Borgarholts og vakir yfir bænum. Í aukahlutverki, en mikilvægu þó, er lýsing í og við hús og garða sem fylgir árstímanum og glæðir þessa fallegu mynd enn meira lífi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert