Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) til fimm ára. Hefur hún störf 1. mars 2024 og tekur við af Markúsi Ingólfi Eiríkssyni.
Þetta kemur fram í tilkynningu stjórnarráðsins.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra skipaði hana í embættið í kjölfar þess að hæfnisnefnd mat Guðlaugu Rakel mjög vel hæfa.
Guðlaug Rakel er hjúkrunarfræðingur að mennt. Hún er einnig með meistaranám í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands (HÍ) og hefur jafnframt lokið ýmsum námskeiðum í lýðheilsuvísindum innan læknadeildar HÍ í tengslum við doktorsverkefni sem hún vann að um faraldsfræði notenda bráðamóttaka.
„Guðlaug Rakel hefur langa og víðtæka reynslu af stjórnunarstörfum, auk þess að hafa um árabil starfað sem hjúkrunarfræðingur. Frá árinu 2000 hefur hún sinnt ýmsum stjórnunarstörfum innan heilbrigðiskerfisins. Árið 2019 tók hún við starfi framkvæmdastjóra meðferðarsviðs Landspítala þar til hún var sett tímabundið í embætti forstjóra Landspítala haustið 2021,“ segir í tilkynningunni.