Nýtt mat: Aukin hætta á gosi án fyrirvara í Grindavík

Eldgosið hófst í gærkvöldi nærri Sundhnúkagígum.
Eldgosið hófst í gærkvöldi nærri Sundhnúkagígum. mbl.is/Árni Sæberg

Veðurstofan hefur gefið út nýtt hættumatskort vegna eldgossins við Sundhnúkagíga. Í kortinu er byggt á túlkun nýjustu gagna og stöðu virkninnar í eldgosinu.

Fram kemur að hætta hafi aukist umtalsvert á öllum svæðum sem skilgreind voru á eldra hættumatskorti, það er á svæðum 1 til 4.

Tvö ný svæði hafa þá bæst við kortið, svæði 5 til 6. Í tilkynningu Veðurstofunnar segir að að öllu óbreyttu gildi þetta kort til fimmtudagsins 28. desember.

Síðasta hættumatskort var gefið út 8. desember og má sjá það fyrir neðan nýja kortið til glöggvunar á breytingunum.

Sjá má að aukin hætta er á gosopnun án fyrirvara í Grindavík og einnig að gosopnun er talin möguleg við Svartsengi og Bláa lónið, á svæði 1 á kortinu.

Hættumatskort Veðurstofunnar gefið út 19. desember.
Hættumatskort Veðurstofunnar gefið út 19. desember. Kort/Veðurstofa Íslands
Fyrra hættumatskort Veðurstofunnar sem gefið var út 8. desember.
Fyrra hættumatskort Veðurstofunnar sem gefið var út 8. desember. Kort/Veðurstofa Íslands

Hrauntunga teygir sig í vestur

Tekið er fram að áfram dragi úr krafti gossins.

„Á nýjum yfirlitsmyndum af svæðinu sést að nú gýs úr þremur gosopum suðaustur af Stóra-Skógfelli, en gosopin voru áður fimm. Hraun hefur að mestu flætt í austur út frá eldstöðvunum, en einnig er hrauntunga að teygja sig í vestur fyrir norðan Stóra-Skógfell.“

Frá því að gos hófst hafa um 320 skjálftar mælst yfir kvikugangingum.

Stærsti skjálftinn mældist ,1 að stærð klukkan 23.25 í gærkvöldi. Eftir miðnætti hefur dregið töluvert úr skjálftavirkni og frá því klukkan 12 í dag hafa aðeins 10 skjálftar mælst.

Fyrirvari getur verið mjög stuttur

Bent er á að auknar líkur séu á að gossprungur opnist víðar, á meðan áfram gýs, á upphaflegu sprungunni sem og lengra til norðurs eða suðurs.

„Ef horft er til aðdraganda gossins, þá liðu um 90 mínútur frá því að fyrstu merki sáust og þangað til að gos hófst. Miðað við upphaf gossins við Sundhnúk getur fyrirvari á nýjum opnunum því verið mjög stuttur.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert