Öllum leiðum til Grindavíkur lokað

Gossprungan er fjórir kílómetrar að lengd.
Gossprungan er fjórir kílómetrar að lengd. Ljósmynd/Lögreglan

Næstu daga verður öllum leiðum til Grindavíkur lokað. Verður engum hleypt inn á hættusvæðið við Grindavík nema viðbragðsaðilum og verktökum sem eiga erindi þangað.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Við viljum biðja fólk um að vera ekki að fara að gosinu og huga að því að gas sem kemur úr þessu getur verið hættulegt. Vísindamenn þurfa nokkra daga til að meta ástandið þarna og endurmetum við í raun stöðuna á hverjum klukkutíma.

Eru vegfarendur beðnir um að virða lokanir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert