Mikil fjölgun gjaldþrota í byggingariðnaði

Í október urðu 34 fyrirtæki í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð gjaldþrota.
Í október urðu 34 fyrirtæki í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð gjaldþrota. mbl.is/Ómar Óskarsson

Til þessa hafa 240 fyrirtæki orðið gjaldþrota í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð á árinu. Til samanburðar voru gjaldþrotin 86 allt árið í fyrra.

Í október urðu 34 fyrirtæki í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð gjaldþrota og var þetta fjórði mánuðurinn á árinu sem gjaldþrotin voru fleiri en 30. Fyrir þetta ár og frá 2012 hafði fjöldi þeirra einungis einu sinni farið yfir 30 í sama mánuðinum. Minna er flutt inn af byggingarhráefnum, skuldsetning byggingarverktaka eykst.

Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu hagdeildar HMS.

„Þó hefur hægst á gjaldþrotum fyrirtækja í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð en á fyrri hluta þessa árs voru samtals 186 fyrirtæki gjaldþrota. Á sama tíma standa nýskráningar í stað milli ára en um 50 fyrirtæki hafa að meðaltali verið nýskráð á mánuði í byggingariðnaði það sem af er ári,” segir í tilkynningunni.

801 þúsund kr. fermetraverð

Fram kemur að fermetraverð á nýjum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu hafi verið 801 þúsund krónur í október.

Á höfuðborgarsvæðinu hefur munurinn á milli fermetraverðs nýrra íbúða og annarra íbúða aukist undanfarin þrjú ár. Á sama tíma hefur meðalstærð nýrra íbúða minnkað. Svipaða sögu er að segja af þróun fermetraverðs í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.

„Þróun á meðalstærð nýbyggðra íbúða kann að útskýra að einhverju leyti hvers vegna fermetraverð þeirra hefur hækkað eins og raun ber vitni. Fermetraverð íbúða er mismunandi eftir stærð og er að meðaltali hærra á minni íbúðum. Á höfuðborgarsvæðinu  hefur meðalstærð nýrra íbúða farið úr því að vera rúmlega 100 fm. árin 2019 - 2022 í um 90 fm. á þessu ári,” segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert