Blaðamaður BBC fékk far með þyrlu landhelgisgæslunnar til að berja gossvæðið á Reykjanesskaganum augum.
Breski blaðamaðurinn, Nick Beake, virtist ekki eiga í miklum vandræðum með að bera íslensk staðarheiti fram og sagði Grindavík til að mynda nokkuð skýrt.
Fékk Beake leyfi til að fljóta með Landhelgisgæslunni í æfingaflugi og greindi lesendum miðilsins frá eldvirkninni og raunum Grindvíkinga úr þyrlunni.