Tveir af þremur sonum Eddu Bjarkar Arnardóttur og íslensks manns, búsetts í Noregi, sem leitað hefur verið að síðustu vikur, eru fundnir. Þá voru systir Eddu og lögmaður handtekin.
Þetta herma heimildir mbl.is.
Börnin voru í bíl systur Eddu sem var á ferð í Garðabæ þegar drengirnir fundust. Drengirnir voru færðir í umsjá barnaverndar.
Fundur og handtakan atvikuðust þannig að óeinkennisklæddir lögreglumenn stöðvuðu bíl systur hennar skömmu eftir að hún og drengirnir yfirgáfu kaffihús um tíuleytið í morgun.
Með í för var jafnframt barn systur Eddu sem einnig var fært í umsjá barnaverndar tímabundið. Lögmaður Eddu var svo handtekinn á lögmannsstofu sinni skömmu síðar.
Yfirvöld hafa leitað drengjanna um nokkurt skeið til að framkvæma svokallaða aðfarargerð. Í henni felst að yfirvöld færi drengina í forsjá föður síns í Noregi.
Málið á rætur að rekja til þess þegar norskur dómstóll úrskurðaði að þrír drengja þeirra, 12 ára tvíburar og 10 ára, skyldu hafa lögheimili hjá föður sínum og að hann skyldi einn fara með forsjá þeirra.
Edda fór með þá af heimili þeirra í Noregi fyrir einu og hálfu ári gegn vilja föður þeirra og fór til Íslands.
Edda var svo handtekin um mánaðamótin og framseld til Noregs þar sem hún situr nú sakamál fyrir að nema drengina á brott.