„Ekki öllum kunnugt“ um reglurnar

Þingmenn hafa fengið vildarpunkta til persónulegra nota vegna flugmiða sem …
Þingmenn hafa fengið vildarpunkta til persónulegra nota vegna flugmiða sem ríkið greiðir fyrir. Samsett mynd/Hörður/Eggert/Hari

Fjármálaráðuneytið hyggst óska eftir því við önnur ráðuneyti að þau stuðli að frekari kynningu reglna um greiðslu ferðakostnaðar vegna ferðalaga á vegum ríkisins. Fullyrðir ráðuneytið að borið hafi á því „að ekki öllum sé kunnugt um þær“.

Er það á ábyrgð ráðuneyta og stofnana að framfylgja reglunum.

Þetta kemur fram í skriflegu svari ráðuneytisins við fyrirspurn mbl.is um fyrirkomulag vildarpunktasöfnunar ríkisstarfsmanna.

Eins og fram hefur komið í umfjöllun mbl.is hafa þingmenn fengið vildarpunkta til persónulegra nota vegna flugmiða sem ríkið greiðir fyrir. 

Reglur endurspegla afstöðu ráðherra

„Gildandi reglur endurspegla afstöðu fjármála-  og efnahagsráðherra en þær voru síðast endurskoðaðar árið 2020. Samkvæmt 9. grein reglnanna eiga fríðindi og vildarkjör sem aflað er við greiðslu á farmiða eingöngu að koma þeim ríkisaðila sem greiðir farmiðann til góða,“ segir í svari ráðuneytisins við fyrirspurn mbl.is.

Ekki er þó tekið skýrt fram hvort ráðuneytið telji vildarpunktasöfnun ríkisstarfsmanna, vegna flugfarmiðakaupa sem ríkið greiðir fyrir, vera brot á þeirri grein sem vísað er í. 

Í bága við lög og siðareglur

Félag atvinnurekenda ritaði forseta Alþingis og fjármálaráðherra einnig erindi út af málinu þann 25. október. Var þar óskað eftir upplýsingum um eftirlit með reglunum sem vísað er í hér að ofan en að mati FA brýtur fyrirkomulag vildarpunktasöfnunar ríkisstarfsmanna í bága við lög og siðareglur. Svör ráðuneytisins við erindinu bárust á mánudag.

Í þeim kemur fram, eins og í svörum til mbl.is, að það sé á ábyrgð ráðuneyta og stofnana að framfylgja reglunum. 

Stjórnendur skulu m.a. sjá til þess að fyrirkomulag og framkvæmd við kaup flugfarmiða sé í samræmi við inntak reglnanna. Ráðuneytið hyggst óska eftir því við önnur ráðuneyti að þau stuðli að frekari kynningu reglnanna fyrir stofnunum. Samkvæmt lögum um opinber fjármál ber hlutaðeigandi ráðuneytum að hafa virkt eftirlit með rekstri stofnana. Verði uppvíst um brot á reglunum ber að bregðast við með viðeigandi hætti,“ segir m.a. í svari við erindi FA.

Ekki boðleg svör

„Okkur finnst þetta ekki boðleg svör,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, í samtali við mbl.is.

„Ríkið hefur sett sér reglur um það hvernig á að fara með svona fríðindi og fjármálaráðuneytið hefur augljóslega ekki hugmynd um hvort það er farið eftir reglunum. Það segist ætla að brýna fyrir öðrum ráðuneytum að þau fylgi því eftir að það sé farið eftir þeim,“ heldur hann áfram.

Segir fyrirkomulagið spillingu

Hann segir reglurnar ekki settar að ástæðulausu. Þær séu til þess að koma í veg fyrir spillingu. 

„Það er að sjálfsögðu spilling ef ríkisstarfsmenn þiggja persónulegan ávinning út á ferðalag sem skattgreiðendur hafa borgað fyrir þá. Í nágrannalöndum okkar hafa stjórnmálamenn þurft að segja af sér af því að þeir brutu sams konar reglur.“

Hann segir skorta skýra yfirlýsingu frá ráðuneytinu að eftirfylgni sé með reglunum.

Endurskoðun rammasamnings

Þá segir Ólafur einnig skorta yfirlýsingu um að í næstu samningum við flugfélögin verði tekið fyrir að starfsmenn fái vildarpunkta vegna ferðalaga í þágu ríkisins en tekið er fram í svarinu við erindinu að Ríkiskaup vinni að endurskoðun rammasamnings um flugfargjöld.

„Við endurskoðun samningsins ber Ríkiskaupum að gæta þess að kaup á flugfarmiðum séu í samræmi við reglur um greiðslu ferðakostnaðar vegna ferðalaga á vegum ríkisins. Gerð er sú krafa til stofnana að flugfargjöld séu keypt í samræmi við þá rammasamninga sem Ríkiskaup gerir,“ segir í svari ráðuneytisins.

Í færslu á LinkedIn í október sagði Sara Lind Guðbergsdóttir, forstjóri Ríkiskaupa, að persónulegur ávinningur, svo sem vildarpunktar, ættu ekki og mættu ekki hafa áhrif á kaup ríkisstarfsmanna á flugmiðum.

„Mark­miðið með samn­ingn­um er skýrt  að fá hag­kvæm­asta verðið í flug­far­gjöld,“ sagði hún.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert