Taka höndum saman um nýja þjóðarsátt

Formenn félaganna sem sátu óformlegan fund með Samtökum atvinnulífsins í …
Formenn félaganna sem sátu óformlegan fund með Samtökum atvinnulífsins í húsnæði ríkissáttasemjara í dag. Á myndina vantar Eið Stefánsson frá Landssambandi íslenzkra verzlunarmanna. Ljósmynd/Aðsend

Stærstu stéttarfélög og landssambönd á almennum vinnumarkaði hér á landi hafa ákveðið að taka höndum saman um nýja þjóðarsátt.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá formönnum Eflingar, Landsambands íslenzkra verzlunarmanna, Samiðnar - sambands iðnfélaga, Starfsgreinasambands Íslands og VR.

Skynja ákall um farsæla kjarasamningsgerð

„Íslensk heimili hafa of lengi verið föst í spennitreyju ofurvaxta og óðaverðbólgu, en hætta er á að kjarabætur sem náðst hafa fram í kjarasamningum síðustu ára brenni upp og verði að engu. Það hvernig tekst til við endurnýjun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði eftir áramótin mun skera úr um þetta,“ segir í tilkynningunni.

Fulltrúar stærstu landssambanda og stéttarfélaga landsins segjast skynja ákall samfélagsins um farsæla kjarasamningagerð og átta sig á fordæmisgefandi hlutverki kjarasamninga á hinum almenna vinnumarkaði.

Formenn Eflingar, Landsambands íslenzkra verzlunarmanna, Samiðnar - sambands iðnfélaga, Starfsgreinasambands Íslands og VR segjast sammála um grundvallarnálgun í komandi kjarasamningagerð, en samanlagt fara þessi félög með samningsumboð fyrir rúmlega 115 þúsund manns eða um 93% launafólks innan vébanda ASÍ.

„Í sameiginlegri grundvallarnálgun þessara félaga er horft til þess að hófsamar launahækkanir á formi krónutöluhækkana verði bundnar ströngum forsendum um lækkun verðbólgu og vaxta, með það að markmiði að verja og auka kaupmátt launa meirihluta alls launafólks. Nálgunin felur í sér að allir aðilar sem hafa áhrif á afkomu heimilanna axli ábyrgð – fyrirtæki, stjórnvöld og sveitarfélög,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Verða að leiðrétta stórfelldra rýrnun bóta

„Stjórnvöld verða að leiðrétta stórfellda rýrnun barnabóta, vaxtabóta og húsnæðisbóta síðustu áratugi, en þessar skattfrjálsu bætur eru líflína margra heimila í landinu. Einnig verður að gera löngu tímabærar ráðstafanir til að tryggja öryggi leigjenda og koma jafnvægi á húsnæðismarkaðinn í heild sinni.

Félögin munu skipa sameiginlega samninganefnd, sem verður falið að leiða viðræður við stjórnvöld og SA um heildstæðan langtímasamning byggðan á þessari grundvallarnálgun.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert