Lögregla kölluð til í sumarbústaðarhverfi

Sérsveitin var kölluð til í kvöld.
Sérsveitin var kölluð til í kvöld. Ljósmynd/Colourbox

Lögreglan bregst nú við útkalli í sumarbústaðarhverfi norðan við Hólmsárbrú, nærri Hólmsheiði. Þetta staðfesta Neyðarlínan og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins í samtali við mbl.is.

Sjónarvottur segir við mbl.is að hann hafi séð að minnsta kosti einn lögreglubíl, þrjá sjúkrabíla og einn sérsveitarbíl á leið á vettvang.

Útkallið er ekki vegna umferðaróhapps samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu en ekki fást frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert