Súðavíkurhlíð lokað í kvöld

Súðavíkurhlíð.
Súðavíkurhlíð. mbl.is/Sigurður Bogi

Vegna veðurs og snjóflóðahættu mun veginum um Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum verða lokað kl 22 í kvöld, 23. desember. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni en app­el­sínu­gul viðvör­un tek­ur í gildi á Vest­fjörðum klukk­an 5 í fyrra­málið og gild­ir til klukk­an 10. 

Mik­il hætta er tal­in á að snjóflóð falli og verður varðskipið Freyja til taks á svæðinu fram yfir helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka