Gjaldskrárhækkanir víða um áramót

Reykvíkingar þurfa að sætta sig við hærri aðgangseyri í sund,
Reykvíkingar þurfa að sætta sig við hærri aðgangseyri í sund, mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þótt fögur fyrirheit séu gefin um að halda skuli aftur af gjaldskrárhækkunum í aðdraganda kjaraviðræðna endurspegla samþykktir sveitarfélaga þau ekki.

Sorphirðugjöld hækka víða mikið. Reykvíkingar þurfa að sætta sig við hærri aðgangseyri í sund, á listasöfn og í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Strætó og pósturinn hækka gjöldin milli ára.

Krónutöluskattar hækka um 3,5%. Sú hækkun tekur til útvarpsgjalds, áfengis og tóbaks auk bensíns. Grunngjald bifreiðagjalds hækkar langt umfram þetta eða um rúm 30%. Nýtt kílómetragjald getur kostað eigendur rafmagnsbíla um 90 þúsund krónur á ári miðað við meðalakstur. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert