Senda út sameiginlega yfirlýsingu eftir fund

Gefin var út sameiginleg yfirlýsing að fundinum loknum.
Gefin var út sameiginleg yfirlýsing að fundinum loknum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Samtök atvinnulífsins, breiðfylking landssambanda og stærstu stéttarfélaga á almenna vinnumarkaðinum hafa tekið höndum saman um að gera langtímakjarasamninga sem eiga að auka fyrirsjáanleika og stöðugleika i efnahagslífinu.

Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu sem gefin var út að loknum fundi þeirra nú í hádeginu.

Enginn geti skorast undan ábyrgð

Samningsaðilar eru sammála um að eitt mikilvægasta verkefnið i komandi kjaraviðræðum sé að ná niður mikilli verbólgu og háu vaxtastigi sem komið hefur hart niður á bæði heimilum og fyrirtækjum, að því er fram kemur í yfirlýsingunni.

Til að það markmið náist verði allir aðilar vinnumarkaðarins, fyrirtæki landsins, ríki og sveitarfélög að leggjast á eitt. Enginn geti skorast undan ábyrgð.

Samningsaðilar skora á fyrirtæki landsins, ríki og sveitarfélög að styðja við markmið kjarasamninganna um að ná niður verbólgu og þar með vöxtum, með því að halda aftur af gjaldskrár- og verðhækkunum og launaskriði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert