Klara Ósk Kristinsdóttir
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir ekkert Evrópuland vinna að fjölskyldusameiningum og kveðst tala fyrir því að unnið sé með sambærilegum hætti hér á landi. Hún segir stöðuna snúna.
Hópur Palestínumanna sem býr hér á landi hefur sett upp tjöld fyrir utan Alþingishúsið vegna kröfu um fjölskyldusameiningu. Er það í mótmælaskyni við aðgerðarleysi stjórnvalda í tengslum við fjölskyldusameiningar.
„Þetta er mjög snúin staða og ég skil vel angist þessa fólks sem á ástvini á Gasa,“ segir Guðrún og bætir við að unnið sé að því að kortleggja stærð hópsins sem bíður fjölskyldusameiningar. Auk þess sem horft er til þess hvað löndin í kringum Ísland eru að gera.
„Það er ekkert ríki Norðurlandanna í fjölskyldusameiningum og engin lönd í kringum okkur eða í Evrópu, eftir því sem við komumst næst. Þannig að þetta er mjög snúin staða, hvernig á að snúa sér í þessu,“ segir hún.
Er það leið sem þið viljið fara líka að vera ekki með fjölskyldusameiningar?
„Ég hef talað fyrir því að við eigum að aðlaga okkar útlendingalöggjöf, og málaflokkinn, að löndunum í kringum okkur. Við getum ekki verið hér með einhverja séríslenskar reglur eða séríslenska framkvæmd sem er allt öðruvísi en löndin í kringum okkur eru að gera. Þess vegna hef ég verið að horfa til þess að við séum að vinna með sambærilegum hætti og löndin í kringum okkur.“