Teikning: Fyrirhugaður varnargarður við Grindavík

Svona á hluti af fyrirhuguðum varnargarði við Grindavík að líta …
Svona á hluti af fyrirhuguðum varnargarði við Grindavík að líta út. Kort/Stjórnarráðið

Varnagarður við Grindavík verður samtals um 7 kílómetrar að lengd og mun liggja að mestu í hápunktinum ofan og umhverfis Grindavík. Hæð hans verður mismunandi eftir staðsetningu í landinu og þróun jarðhræringa, en almennt um 6–10 metrar á hæð. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.

Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra lagði til á ríkisstjórnarfundi í morgun að ráðist yrði í fyrsta áfanga varnargarða við Grindavík sem fyrst. Fyrsti áfanginn er sá hluti af varnargörðunum sem almannavarnir telja mikilvægastan.

Varnagarðurinn verður byggður í tveimur áföngum

Eins og mbl.is greindi frá að loknum ríkisstjórnarfundi í ráðherrabústaðnum er lagt til að í fyrstu lotu verði einungis byggður helmingur af efsta hluta garðsins, en hann verður byggður í tveimur áföngum. Í framhaldinu verður staðan endurmetin meðal annars með hliðsjón af stöðu og þróun jarðhræringa. 

„Í minnisblaði Verkís kom meðal annars fram að varnargarður sem innviðahópurinn hefur gert tillögu að ofan við Grindavík væri samtals um 7 km að lengd. Hann myndi liggja að mestu í hápunktum í landinu ofan og umhverfis Grindavík.

Ljóst er að meginmarkmið garðsins er að verja byggð og innviði í Grindavík og yrði hann áberandi kennileiti. Garðurinn þverar Grindavíkurveg og Suðurstrandarveg ásamt því m.a. að liggja samsíða Nesvegi. Reynt verður á byggingartíma að milda áhrif garðsins og gera viðeigandi ráðstafanir til lengri tíma,“ segir í tilkynningu stjórnarráðsins. 

Forgangsraðað með tilliti til yfirvofandi hættu

Í minnisblaði frá Verkís er jafnframt lagt til að vinna með samráð og hönnun við seinni áfanga varnargarðsins skuli hefjast á næstu mánuðum. Byggingarvinna myndi þá hefjast næsta vor eða um sumarið, nema augljós breyting verði á virkni þannig að hraða þurfi framkvæmdum, segir í tilkynningunni. 

„Þannig yrði forgangsraðað með tilliti til yfirvofandi hættu á eldgosi frá Sundhnúki nú, en aðrir hlutar unnir með meiri yfirvegun til að tryggja góða útfærslu næst byggð og innviðum.“

Heildarverðmæti vátryggðra húseigna nemur um 110 milljörðum króna

Í samantekt Byggðastofnunar frá desember 2023 kemur m.a. fram að íbúafjöldi Grindavíkur sé um 3.600 manns. Áætlað vinnuafl er um 2.100 manns og atvinnuleysi rétt rúm 2%. Sjávarútvegurinn er stærsta atvinnugreinin með ríflega 35% af heildaratvinnutekjum en næst kemur opinber þjónusta.

Samkvæmt upplýsingum frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands nema heildarverðmæti vátryggðra húseigna um 110 milljörðum króna. Auk þess nema verðmæti vátryggðs lausafjár, innbús og hafnar- og veitumannvirkja um 44 milljörðum. Eru þá ótalin verðmæti í götum, göngustígum, lóðum og öðrum samfélagslegum mannvirkjum á svæðinu, segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert