Rannsökuðu grun um alvarlegt brot lögreglumanns

Ólafur Þór Hauksson.
Ólafur Þór Hauksson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mál yfirmanns hjá lögreglunni á Suðurlandi sem hefur verið í leyfi frá störfum eftir ásakanir um brot gegn samstarfskonu kom á borð embættis héraðssaksóknara síðastliðið sumar.

Að rannsókn lokinni færðist það af rannsóknarsviði yfir á ákærusvið hjá embættinu. Niðurstaðan hjá ákærusviði var að málið þótti ekki líklegt til sakfellingar eins og það lá fyrir.

Niðurstaðan kærð til ríkissaksóknara

Þetta segir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari, sem bætir við að sú niðurstaða hafi verið kærð til ríkissaksóknara og þar sé málið statt núna.

„Við staðfestum það sem hefur komið fram og þetta er okkar aðkoma að málinu. Hún er eins og lögreglulögin áskilja um að við eigum að rannsaka brot þegar um er að ræða grun um alvarleg brot lögreglumanna utan starfs,” segir Ólafur Þór.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert