Yfirmaður hjá lögreglunni á Suðurlandi hefur verið í leyfi frá störfum eftir að hafa verið sakaður um brot gegn samstarfskonu sinni.
Meint brot áttu sér stað utan starfstíma, að því er heimildir RÚV herma.
Fram kemur að málið hafi verið sent til rannsóknar hjá embætti héraðssaksóknara, sem felldi það niður í nóvember síðastliðnum. Konan kærði ákvörðunina til ríkissaksóknara og er málið statt þar núna.
Hvorki náðist í Ólaf Þór Hauksson héraðssaksóknara né Grím Hergeirsson, lögreglustjóra á Suðurlandi, við vinnslu fréttarinnar en í samtali við RÚV vildu þeir ekkert tjá sig um málið.