Engan veginn gott hvernig stjórnsýslu var háttað

Stefán var formaður atvinnuveganefndar er Svandís tók ákvörðunina og sagði …
Stefán var formaður atvinnuveganefndar er Svandís tók ákvörðunina og sagði hann þá að hann teldi vinnubrögð ráðherrans ekki standast. Samsett mynd

Stefán Vagn Stefánsson, oddviti Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, segir í samtali við mbl.is að álit umboðsmanns Alþingis komi sér ekki á óvart.

Eins og greint var frá fyrr í dag er það álit umboðsmanns Alþing­is að út­gáfa reglu­gerðar Svandís­ar Svavars­dótt­ur, sem bannaði tíma­bundið hval­veiðar í sum­ar, hafi ekki sam­ræmst kröf­um um meðal­hóf og hafi ekki átt sér nægi­lega skýra stoð í lög­um.

„Einhvern veginn kom manni ekki á óvart að þetta yrði niðurstaðan og engan veginn gott að stjórnsýslan sé með þessum hætti,“ segir Stefán.

Ágætt að leyfa deginum að líða

Stefán var formaður atvinnuveganefndar er Svandís tók ákvörðunina og sagði hann þá að hann teldi vinnubrögð ráðherrans ekki standast.

Hann segir að þingflokkur Framsóknar hafi ekki boðað til auka fundar eins og þingflokkur Sjálfstæðisflokksins til að ræða þetta álit umboðsmanns.

„það er ágætt að láta þennan dag líða svo að menn átti sig á þessu og fái að lesa álitið, heyra svo kannski í ráðherranum,“ segir Stefán.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert