Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, telur ekki tilefni til að kalla saman þing vegna álits umboðsmanns Alþingis um vinnubrögð matvælaráðherra.
„Þingflokkurinn er ekki búinn að funda vegna málsins, við ætluðum bara að leyfa þessum degi að líða og kynna okkur málið áður en við förum að fjalla um það,“ segir Ingibjörg.
Eins og greint var frá fyrr í dag er það álit umboðsmanns Alþingis að útgáfa reglugerðar Svandísar Svavarsdóttur, sem bannaði tímabundið hvalveiðar í sumar, hafi ekki samræmst kröfum um meðalhóf og hafi ekki átt sér nægilega skýra stoð í lögum.
Spurð hvort hún telji líklegt að flokkurinn komi saman um helgina til að ræða málið segir Ingibjörg ljóst að fundað verði á allra næstu dögum til að fjalla bæði um þetta mál og önnur.
Hvernig sérð þú stöðu Svandísar?
„Eins og staðan er núna þá er ég ekki búin að kynna mér þetta nægilega vel til að mynda einhverja afstöðu gagnvart þessu. Þetta var auðvitað stórt mál síðastliðið vor og sumar,“ segir hún og bætir við:
„Við í Framsókn töluðum líka fyrir því og höfðum áhyggjur af því að meðalhófs hefði ekki verið gætt þarna. En ég ætla ekki að taka afstöðu til þess hvort að hún eigi að sitja í sínum stól áfram eða ekki.“