Veronika Steinunn Magnúsdóttir
Vélar Icelandair af gerðinni Boeing 737 Max 9 verða ekki kyrrsettar vegna slyss sem varð í farþegaflugi Alaska Airlines þegar stórt gat opnaðist í farþegarými vélarinnar í háloftunum. Þetta staðfestir Guðni Sigurðsson, samskiptastjóri Icelandair.
„Við höfum verið í samskiptum við Boeing vegna málsins og höfum fengið staðfest að atvikið tengist búnaði sem er ekki til staðar í flugvélum Icelandair,“ segir Guðni í skriflegu svari til mbl.is.
„Þær skoðanir sem flugmálayfirvöld hafa gert kröfu um ná því ekki til flugvéla Icelandair,“ segir Guðni og á við þær 170 flugvélar Boeing 737 Max 9 sem hafa verið kyrrsettar að beiðni bandarískra flugmálayfirvalda (FAA)
Krefst FAA tafarlausrar skoðunar á vélunum áður en þær fara í flug en hver skoðun ætti að taka á bilinu fjórar til átta klukkustundir.
Vélin Alaska Airlines var á leið til Kaliforníu og var í 16 þúsund feta hæð er hluti farþegarýmisins féll úr henni. 177 farþegar voru um borð auk áhafnar og sakaði engan.