Yfirlýsing frá Steypustöðinni vegna banaslyssins

Frá Grindavíkurvegi í gær.
Frá Grindavíkurvegi í gær. Ljósmynd/Vegagerðin

Steypustöðin mun vinna með þeim sem koma að rannsókn banaslyssins sem varð á Grindavíkurvegi í gær. Þetta kemur fram í yfirlýsingu fyrirtækisins sem var send á fjölmiðla.

Slysið varð þegar tvö ökutæki lentu saman á veginum í hálku. Var annað þeirra steypubíll á vegum Steypustöðvarinnar.

Ökumaður og farþegi hins ökutækisins voru úrskurðuð látin á vettvangi. Var ökumaður Steypustöðvarinnar fluttur til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

„Gærdagurinn var mikill sorgardagur í sögu Steypustöðvarinnar og er starfsfólk okkar harmi slegið vegna atburðarins. Hugur okkar er hjá aðstandendum hinna látnu, þar sem margir eiga nú um sárt að binda. Sem stendur leggjum við áherslu á að hlúa að starfsfólki okkar, þar sem öllum er mjög brugðið,“ segir í yfirlýsingu fyrirtækisins.

„Aðhlynning okkar á ekki síst við um ökumanninn sem var við störf á vegum félagsins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert