Sverrir Þór dæmdur í sex ára og níu mánaða fangelsi

Sverrir Þór Gunnarsson árið 2012.
Sverrir Þór Gunnarsson árið 2012. mbl.is

Sverr­ir Þór Gunn­ars­son, bet­ur þekkt­ur sem Sveddi tönn, hefur verið dæmdur í sex ára og níu mánaða fangelsisvistar í Brasilíu fyrir fíkni­efna­laga­brot.

Vísir greinir frá.

Sverrir Þór var handtekinn í apríl í umfangsmiklum aðgerðum brasilísku lögreglunnar. Í júlí var hann ákærður fyrir stór­felld fíkni­efna­laga­brot á alþjóðavísu, hlut­deild í sam­bæri­leg­um brot­um og skipu­lagða glæp­a­starf­semi. Hann gæti átt yfir höfði sér 45 ára fangelsisdóm fyrir þau brot.

Vísir greinir frá því að dómurinn, sem féll í nóvember, var á öðru dómsstigi og er fyrir fíkniefnavörslu. Sverrir Þór hafði í vörslu sinni 150 grömm af maríjúana og 3,6 grömm af kókaíni ætluð til sölu og dreifingar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert